Posted by imerlin on March 3, 2007 at 11:17pm
Held það sé ekki óvitlaust að byrja hópinn á því að kynna sjálfan mig og hvernig ég nota Drupal.
Ég hef notað Drupal í rúmlega 1 ár eða síðan í v4.5 og kolféll fyrir þessu kerfi eftir að hafa prófað hluti eins og Mambo/Joomla, Plone og fleiri kerfi.
Keyri síðuna mína á þessu ásamt nokkrum síðum fyrir vini og fjölskyldumeðlimi.
Hef gefið út:
- Terrafirma (theme)
Er að vinna í:
- Bókunarkerfi: Gerir notendum mögulegt að "bóka" hvað sem er. Hugsað fyrir samkomusali en vel nothæft í fundarherbergi, hárgreiðslustofur eða í raun hvað sem er
Comments
Sælir
Ég hef verið að dútla við Drupal í þónokkurn tíma, og keyri núna bloggið mitt á Drupal. Ég er í meistaranámi í New York og nota Organic Groups til að halda utan um hópavinnu í námskeiðum. Ég lærði á Drupal þegar ég setti upp nokkrar heimasíður fyrirtækja á Íslandi í "gamla daga" með Drupal, t.d. www.alur.is.. Það var þó ekkert sérstaklega Drupal-legt við þær, bara hefbundinn auglýsingabæklingur á Netinu.
Notaði heimatilbúið þema fyrir gamla bloggið en skipti yfir í Minelli (Garland fixed width) þegar Drupal 5 kom út. Er að mestu leyti ánægður með það. Hef einnig lengi viljað gefa e-ð aftur til Drupal samfélagsins, en virðist aldrei finna tíma fyrir það. Gerist vonandi fyrr en seinna.
Ég mun fylgjast með þessu svæði, það verður gaman að sjá hvort það séu fleiri en tveir Íslendingar sem nota Drupal. :)
annar íslenskur drupal notandi
Sælir
Ég hef notast við drupal í ca hálft ár eftir að vinnufélagi kynnti mér fyrir því. ég hreinlega elskaði hvað er hægt að gera í drupal og hef notað það síðan ég prófaði það fyrst. Ef það er einhver áhugi fyrir því þá getiði skoðað síðuna mína á mestur.net, er ekki beint actívur "bloggarri" og flest sem ég skrifa þarna kemur eftir langar svefnlausar nætur og er fyllt af einkahúmor.
Er að hjálpa fjölskyldumeðlimum að setja upp síður sem vilja endilega hafa þær á íslensku og því hef ég áhuga á að hjálpa við drupal 5.0 þýðingarverkefnið.
Ég líka
Er búinn að nota Drupal síðan 4.7 kom út en kann voða lítið á það og á forritun yfirhöfuð. En það stendur alltaf til að læra betur á kerfið og frábært að vita af fleyri íslendingum sem hafa valið Drupal fram yfir Joomla sem mér sýnist vera vinsælasta CMS´ið á íslandi.
Nota Drupal
ég hef notað Drupal síðan 4.7 á www.benzi.is og einnig á www.aurora.is
Hef flutt allt yfir í 6 og gekk misjafnlega vel.
Er með viðamikla síðu í smíðum sem ég treysti engu til að halda utanum nema Drupal og er því nokkuð ánægður þó mikið sé að læra í tengslum við notkunina
Nota líka Drupal
Ég hef notað Drupal á þessum og fleiri síðum www.hi.is, www.khi.is, www.unicef.is og fleirum og fleirum. Er að vinna í HÍ þar sem yfir 100 vefur verða í Drupal í framtíðinni.
Gaman að sjá að fleiri eru með!
kv, Logi