Posted by baddysonja on June 15, 2013 at 9:01am
Hæ,
mig langaði að athuga hvort það sé ekki vilji fyrir að koma þessum hóp af stað enn og aftur. Ég rek Drupal fyrirtæki í Þýskalandi og hef verið að vinna nokkur verkefni á Íslandi, t.d. m.miklaborg.is, fyrirburar.is, kirkja.is, batarb.is, ....
Ég er í mjög virkum hópi hérna í Þýskalandi og það væri gaman að taka þátt í svipuðum íslenskum hóp.
Kv. frá Frankfurt,
Baddý

Comments
Re: Hæ
Hæ Baddý,
Gott mál að einhver sé á lífi hérna. Ég stunda lítið Drupalland þessa dagana, svo ef það vill einhver annar taka við þessu - er það gott mál.
Sýndu smá frumkvæði að því að glæða smá lífi hérna og þá get ég fært admin réttindi yfir á þig.
Kveðjur frá Danmörku,
Andri
Samstarf
Ég var nýlega að stofna mitt eigið fyrirtæki og er sjálfur að vinna í að setja upp síðuna fyrir fyrirtækið upp í Drupal. Ég væri tilbúinn í að hefja samstarf til að halda þróunn á íslenskum Drupal gangandi en Drupal er ekki mjög vinsælt hér heima og flestir ekki áhugasamir að nýta Drupal sem CMS kerfið þeirra. Margir þekkja Wordpress vel og vilja nota það frekar eða eru í samstarfi við íslenska aðila með Eplica, Webmaster o.s.frv.
Þessi vefur hefur verið mér erfið, ég lendi í því regluleg að læsast út af vefnum og þarf alltaf að endurstilla lykilorðið mitt svo ég hef ekki átt auðvelt með að taka þátt í neinum umræðum. Ég hef líka verið lítið virkur í Drupal þróunn þar sem það er mikill skortur á samstarfsaðilum á íslenska markaðnum og því lítið hægt að snúa sér eftir aðstoð.
Ef einhver er hér í Drupal þróunn og getur hafið samstarf og verkefnaskipti væri ég til í að reyna halda þessum hópi meira virkum.
Einar Ólafsson, einland.is/cv
RE: Samstarf
Sæll Einar,
Ég er ekki sammála að Drupal sé ekki vinsælt heima á Íslandi, við finnum fyrir miklum áhuga á Drupal sérstaklega síðan RÚV, Háskóli Íslands og Dominos launch-uðu síðunum sínum í Drupal. En auðvitað er það ekki jafnvinsælt og Wordpress, en þegar kemur að aðeins flóknari verkefnum, þá verður valið oftast Drupal fram yfir Wordpress.
Við höfum mikinn áhuga á að glæða lífi í íslenska hópinn hérna, vinna að þýðingu og vera í samstarfi við aðra "Drupala" á landinu. Ég rek Drupal fyrirtæki í Þýskalandi og við erum alltaf að leita að góðu Drupal fólki á Íslandi eða samstarfi við önnur fyrirtæki.
Ef þig vantar aðstoð eða ert að leita eftir samstarfi, endilega sendu mér þá línu á b.breidert@1xinternet.de
kv. Baddý
Vinsældir
Verð reyndar að vera smá sammála Einari, þó svo hann hafi samt ekki alveg rétt fyrir sér, eða þannig.
Almennt þá virðist Drupal ekki vinsælt á Íslandi, en ég man í kringum 2007, þá voru umræður um ágæti Joomla að tröllríða öllu sem ég las. Gat reyndar ekki skilið það þar sem ég var miklu hrifnari af Drupal.
WP er núna að taka við Joomla að einhverju leiti þó Joomla eigi enn sína fylgjendur, en Drupal liggur samt alltaf undir yfirborðinu. Ástæðuna fyrir þessu tel ég einfaldlega þá að Drupal er meira "alvöru" heldur en hin tvö kerfin.
Ég hef unnið að nokkrum vefjum og keyrir sjálfur blöndu af Drupal og WP uppsetningum. Ástæðan er einfaldlega sú að þessi tvö kerfi eru bara ekki eins. Á meðan WP og að sama skapi Joomla, eru einfaldari kerfi og henta mjög vel fyrir "basic" blog síður, þá koma þau ekki á hálfkvist við Drupal þegar kemur að stærri og flóknari vefum. Sérstaklega þeim sem hafa með að gera aðgangsstýrt fjölnotendakerfi, þó vissulega geti WP og Joomla nýst í slíkt líka.
Þetta er ástæðan fyrir því, að ég tel, að HÍ og RÚV eru að nota Drupal, en þar kemur styrkur Drupal inn einna best.
Svo má ekki gleyma því að Drupal er ekki beint notendavænt þegar kemur að einstaklingum sem hafa engan bakgrunn í forritun, eða tölvunotkun umfram ritvinnslu og töflureikni.
Þannig að, til að gera langan póst enn lengri, þá er þetta einfaldlega þannig að þeir sem vinna með Drupal eru færri en þeir sem vinna með einfaldari kerfin, en að sama skapi eru þeir með aðeins dýpri þekkingu. Þeir eru því líklegri til að vinna þetta sjálfir og eru ekki að hrópa mikið og kalla, eins og þeir sem eru í hinu umhverfinu. Það alla vega er málið með mig, maður bara reddar sér í horninu sínu.
Hins vegar er það ekki gott til lengdar og fann ég það þegar ég setti upp íslenskan vef fyrir nokkrum árum (ég er mest í vefum á ensku), en þá varð ég að eyða tíma í þýðingar sem samkvæmt öllu hefðu áttu að liggja fyrir.
Tel alveg þess virði að við reynum að gera eitthvað með að deila svona því helsta sem hægt er að samnýta, enda styrkir það okkur öll. Hvað varðar almennt félagsstarf, þá veit ég persónulega ekki hvað ég hef mikið umfram til hittinga eða slíks, en auðvitað væri það gaman ef hægt væri.
Kveðja,
Jón
Drupal á íslandi
Einnig eru "markaðsöflinn" fyrir Wordpress hér heima töluvert sterkari en Drupal, margir jafnvel biðja um að setja upp síðurnar sínar í Wordpress og það á líka við um flókna vefi sem gætu vel átt heima í Drupal. Ef menn fara ekki í Wordpress eru þeir oft líklegir til að kaupa dýrari þjónustu af þjónustuaðilum með eigin kerfi hér heima, mörgum flóknum vefum fylgir líka mikið fjármagn :)
En ég vill mikið styrkja stöðu Drupal, Facebook er orðinn sterkur samskiptamáti fyrir vefgeiran, þar er líklega stærsti hópurinn "Íslensk Vefhönnun", en svo er líka til Wordpress hópur en sá hópur hittist reglulega að mér skilst og tóku sig t.d. saman og þýddu nýjustu uppfærsluna yfir á Íslensku.
Það fyrsta sem mig langar að stinga upp á er að stofna Drupal hóp á Facebook til að auðvelda samskipti milli Drupal áhugamanna á Íslandi. Áður en ég geri það vildi ég spyrja ykkur hvort þið vitið af að slíkur hópur sé til? Ef ekki ætla ég að stofna nýjan hóp og linka hann hingað inn svo þið getið bætt ykkur við.
Svo væri frábært að geta í gegnum hópinn skipulagt hititnga, ég hef sjálfur takmarkað verið að vinna með Drupal mönnun, annað en þegar ég aðstoðaði RÚV og UNICEF. Jafnvel að hafa einhverja Google Hangout hittinga ef fólk er ekki statt á Íslandi og vill taka þátt.
Hvað segið þið um þetta?
Einar Ólafsson, einland.is/cv
Drupal hópur á Íslandi
Ég ákvað bara skella í einn facebook hóp, endilega bætið ykkur við og þá vini ykkar sem eiga heima þar https://www.facebook.com/groups/536636669717641/
Einar Ólafsson, einland.is/cv