Velkomin í endurnærða grúppu, Iceland.
Við ætlum að vera virk í þessari grúppu núna, auglýsa viðburði, hugmyndir, störf og annað hérna, til að halda okkur við Drupal vettvanginn. Einnig eru nokkrir einstaklingar sem eru ekki á Facebook og því nauðsynlegt að auglýsa viðburðina okkar annars staðar en bara þar.
Við erum samfélag. Enginn er rétthærri eða lægri í samfélagi. Baunið á hvort annað spurningum. Búum til umræður, setjum inn pælingarnar okkar. Eina vitlausa spurningin er sú sem aldrei er spurð.
Skrifum blogg um uppáhalds módúlurnar okkar. Verum virk. Þá fáum við líka jákvætt feedback til baka.
Hlökkum til að gera þetta að virkustu grúppunni á Drupal.org.
Kveðja,
Fh. Stjórnar Drupal á Íslandi

Comments
Jibbý
Loksins loksins. Hlakka til :)
Spennandi
Spennandi