Posted by einarps on March 28, 2011 at 4:00pm
Hello all
Since there has been no movement of any kind in the group for years I think it would be a good idea to make changes. Especially since Drupal is growing in Iceland. I would be interested to take on the task of manging the group if that is acceptable.
Þar sem ekkert nýtt hefur gerst í þessum hópi í mörg ár væri það góð hugmynd að gera breytingar. Sérstaklega þar sem Drupal er vaxandi á Íslandi. Ég býðst hér með til að taka að mér að stýra þessum hópi.
Einar Páll

Comments
Sammála
Ég styð þig í þessu Einar. Ég myndi endilega vilja fá meira líf í þennan hóp og komast í samband við þá sem eru að nota Drupal hér á Íslandi.
Kristleifur
Gott mál
Ég er tilbúinn að pósta þeim þýðingum sem ég hef unnið
Halli Magg
Drupal á Íslandi / Drupal Iceland
Sælir Kristleifur og Halli
Þakka fyrir "kommentin".
Ánægjulegt ef við getum komið meiri virkni af stað hérna.
Einnig væri ánægjulegt að heyra í fleirum.
Einar Páll
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Ég er tilbúinn að leggja
Ég er tilbúinn að leggja vinnu í að samtvinna þýðingar og halda utan um umræðu um hvaða stefnu við viljum taka í þeim efnum. Það ætti að vera okkur öllum í hag að eiga góða sameiginlega grunnþýðingu á Drupal og helstu módúlum. Sjálfur á ég enga heilsteypta þýðingu en hef smám saman þýtt meira og meira til að passa upp á að það sem snýr að kúnnum mínum sé skiljanlegt og vel þýtt.
Ég er núverandi maintainer fyrir Icelandic Translation (ásamt imerlin) og íslensku á localize.drupal.org og get gefið öðrum réttindi og aðgang eftir þörfum. Það væri náttúrulega tær snilld að ná þessum verkefnum loksins á flug.
Er þetta ekki aðallega spurning um að koma okkur saman um áherslur og aðferðir og byrja svo að vinna? Það væri væntanlega best að koma af stað umræðu um hvernig við viljum þýða þetta kerfi. Við höfum væntanlega öll notað kerfi sem hafa verið þýdd á íslensku án þess að þau hafi verið gerð skiljanleg.
Hitt er svo annað mál að þessi hópur er væntanlega tilvalinn til að plana hittinga og skiptast á ýmsu fleiru en þýðingum, er það ekki?
Þýðingar og Drupal
Sæll Ágúst
Þakka fyrir upplýsingarnar og svarið.
Ein hugmyndin varðandi þýðingu er sú að Háskólinn verði sá aðili sem sjái um að stýra þýðingunni. Það er orðið nauðsynlegt að þýða a.m.k. þá þætti sem snúa að aðgangsstýringarkerfinu og þar sem töluverður fjöldi starfar við innsetningu efnis í H.Í. held ég að það væri skólanum í hag að slík þýðing kláraðist sem fyrst. Skólinn hefur líka aðgang að fólki með þekkingu á góðri íslensku sem gæti auðveldlega úrskurðað um þýðingar ef á þyrfti að halda. Ég hef aðeins viðrað þessa hugmynd við fólk í H.Í. og hafa þau tekið þessu vel. Ekki er málið komið lengra en ég vonast til að þetta gæti farið af stað í haust og klársast næsta vetur.
Það gæti verið góð hugmynd að fólk sem er að vinna með Drupal myndi hittast. Eins og við vitum er Drupal í mikilli sókn og líklega á þeim sem starfa við Drupal eftir að fjölga verulega næstu árin. Bæði fólki sem starfar við uppsetningu og frágang á vefsíðum og einnig þeim sem starfa við innsetningu. Held að það sé óhjákvæmilegt miðað við afkastagetu hugbúnaðarins.
Ég var einmitt að vonast til þess að með því að taka stjórn á þessum hópi gæti myndast grundvöllur til þess að safna þeim saman sem hafa Drupal sem starfsvettvang sem og þeim sem hafa áhuga á að gera Drupal að starfsvettvangi.
Ekki virðist hægt að ná í imerlin, e.t.v. gætir þú sagt okkur hver það er?
Kveðja
Einar Páll
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Þýðing á D7 og/eða D6
Blessaðir félagar
Fyrst að alvöru átak á að fara í gang að þýða Drupalinn, sem ég fagna, þá langar mig að vita hvar áherslan á að vera. Drupal 7 eða Drupal 6?
Persónulega finnst mér að áherslan ætti að vera á D7 þar sem líklegast flestir eru farnir að setja a.m.k. einfaldari síður í D7 og líklegast þær D6 síður sem eru þegar uppi ættu að hafa þá íslensku sem þörf var á fyrir viðkomandi verkefni og þá sér maður ekki þörf fyrir frekari þýðingu.
Að minnsta kosti er þetta aðstæðan hjá mér, en vissulega ber ég fulla virðingu fyrir því að svo þarf ekki að vera hjá öllum.
kv
Halli Magg
www.heilsusidan.is
Endilega að fá HÍ með í lið
Einar, ég sendi þér upplýsingar um imerlin (vil ekki pósta þeim hér án leyfis).
Það voru einhverjir frá HÍ búnir að vera í sambandi við mig vegna l.d.o. fyrir nokkru síðan. Ég gaf þeim admin réttindi þar en síðan hefur ekkert gerst. Ég er sammála því að það væri kjörið að fá HÍ með okkur í lið með þetta en ég mundi samt vilja fá að vera með, tel mig hafa töluvert fram að færa í þessum efnum.
Það eru bara nokkur grunnhugtök sem þarf að ákveða hvernig á að gera skiljanleg áður en raunverulega er hægt að byrja þýðingarvinnuna. Það er ekkert mál að þýða þau, þannig séð, en það er ekki þar með sagt að venjulegt fólk skilji þær þýðingar. Dæmi: Hvernig þýðið þið orðið node?
Varðandi D6/D7 þá er ég enn að nota sexuna í það sem ég er að vinna en ég held að við hljótum að einbeita okkur að sjöunni varðandi þýðinguna. Þetta á eftir að taka töluverðan tíma og ég hugsa að við verðum flest farin að nota sjöuna þegar þýðing fer eitthvað að nálgast það að verða klár.
imerlin
Sæll
Óháð allri annarri umræðu þá hef ég freistað þess að ná sambandi við imerlin á linkedin.
Vona að það gangi. Veit líklega hver hann er. Umræðurnar eru skemmtilegar um þýðingarnar og reikna með að við náum lendingu í því máli.
Hef áhuga á að koma með comment á það sem menn hafa fram að færa.
Einar Pálll
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Líka hægt að tala við webmaster
Ef ekkert næst í kauða þá ætti að vera hægt að hafa samband við stjórnendur g.d.o og fá admin réttindi fyrir þennan hóp.
Ég er klár í allt
Ég styð þá hugmynd að fá HÍ í lið með okkur í þýðingarnar og að mínu mati er skynsamlegast að leggja áherslu á að þýða D7. Hef aðallega unnið í D6 sjálfur en aðeins kíkt á D7.
Burtséð frá öllum þýðingum þá finnst mér hugmynd Ágústar (Einkahumor) um hitting alveg hreint frábær. Ég kynntist Drupal í Danmörku þar sem ég var að vinna og ég hef enn ekki hitt neinn hér á Íslandi sem er að nota þetta frábæra kerfi. Væri til í að setjast niður með kaffibolla og læra af þeim snillingum sem eru hér á sveimi.
Hafði samband við HÍ
Ég er búinn að hafa samband við Ívar Björn Hilmarsson hjá HÍ (sem hafði samband við mig á sínum tíma) og benda honum á þessa umræðu.
Hittingur væri góður, ég reyndar bý á Akureyri en það er aldrei að vita hvenær maður er á ferðinni. Væri ekki ráð að athuga hvort við náum fleiri inn?
Áframhaldandi umræða og yfirtaka á Drupal Iceland
Ein ástæða þess að ég hóf þessa umræðu var einmitt að freista þess að taka stjórna á þessum hópi. Vona að það takist þannig að við getum snúið okkur að þeim verkefnum sem eru aðkallandi. En eins og Kristleifur bendir á er Drupal frábært kerfi sem er í mikilli sókn. Hér á landi hafa ekki margir boðið uppá uppsetningu á Drupal en óhjákvæmilega mun þeim fjölga á næstu árum. Þrátt fyrir að sumt sé flókið í Drupal miðað við annann opinn hugbúnað fyrir vefsíður þá er Drupal svo öflugt og afkastamikið að aukning er óhjákvæmileg. Núna í dag hef ég sett upp í kringum 50 Drupal vefsíður hér á landi.
Ein ástæða þess að ég var seinn til svars var sú að ég var að flytja fyrirtækið, Emstrur vefsíðugerð, í Hátún 6a. Núna eru flutningar yfirstaðnir og hægt að halda áfram með uppbrettar ermar.
Ef allt gengur að óskum er líklegt að yfirtaka á hópnum náist innan viku til 10 daga. Þ.e.a.s. ef ekki koma fram kröftug mótmæli. Þá er hægt að byrja að sinna ýmsum málum eins og þýðingu.
Varðandi þýðingu á 6 eða 7 þá er staðan þannig að t.d. H.Í. er nýbúinn að skipta yfir í 6. E.t.v. verður auðvelt að skipta frá 6 yfir í 7 en á hitt verður að líta að 7 á töluvert í land að allir módúlar verði fáanlegir í sama mæli og í 6. Sjálfur hef ég skoðað 7 ágætlega og setti upp smá tilraunarvef á vesiduhonnun.is þar sem ég er að skoða 7. Þó að ég hafi ekki eytt miklum tíma í þetta verkefni þá sýnist mér að nokkuð sé í land að ég fari að nota 7 almennt. Alla vega eitt ár eða a.m.k. nokkrir mánuðir.
Það væri mjög áhugavert að hittast. T.d. þegar Ágúst er í bænum. Einn góður staður til að hittast á væri Háskólatorgið og reyna þá að fá þá sem stýra vef HÍ til að mæta. Einnig Kaffitár í Borgartúni.
Kveðja
Einar Páll
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
HÍ
Við hjá RHÍ vefverksmiðjunni erum með áhuga á að taka þátt í þessu verkefni.
Persónulega finnst mér við eigum að ráðast á drupal 7. Við erum að skoða að koma okkar dóti yfir í 7 allaveganna erum að undirbúa það. Þannig að það væri fínt að fá Íslenskuna góða.
Við værum til í að hitta ykkur það væri bara gaman að hitta fleiri sem eru að vinna með drupal og spjalla.
Kveðja
Ívar Björn
Ívar Björn Hilmarsson
RHÍ - Vefverksmiðjan
Sælir, Ég reyndi að taka að
Sælir,
Ég reyndi að taka að mér þetta verkefni fyrir 2 árum, minnrir mig. Setti upp þýðingarþjón og var kominn með ca 25% af þýðingunni fyrir Drupal 6.
Svo virtist ég vera einn í þessu, svo áhuginn fjaraði út og ég snéri mér að öðru.
Gamli notandinn minn (imerlin) á að hafa aðgang að 'is' hópnum - en af einhverjum ástæðum virkar hann ekki á groups.drupal.org lengur, ég skal reyna að fá hann endurvirkan. Þá get ég (held ég) gefið þeim sem vilja stjórna þessu aðgang.
Ég er á landinu fram í júlí og væri vel til í smá Drupal hitting yfir kaffi (og/eða bjór).
p.s.
Ég á gagnagrunninn ennþá, einhverstaðar - svo ég ætti að geta grafið hann upp.
Áhugaverð þróun
Sælir allir,
Áhugavert framlag frá bæði Ívari og Andra (andrioid). Líklega er að koma í ljós að 7 sé besti valkosturinn. Flestir virðast stefna þangað, eðlilega. Einstaklingar hjá H.Í hafa reynslu af svona þýðingum og væri mjög áhugavert fyrir okkur öll að háskólinn væri leiðandi í þýðingarverkefninu. Fleiri ríkisstofnanir eru að taka upp Drupal og veit ég að þar er áhugi fyrir hendi að þýða.
Mjög áhugavert að fá upplýsingar frá Andra um hans reynslu og hugsanlega vonbrigði eftir alla vinnuna. Vonandi geta fleiri lagt hönd á plóginn í dag.
Hvernig væri að taka af skarið og koma með tillögu að tíma til að hittast. T.d. föstudaginn 22. apríl? Ef kaffi þá á Kaffitár í Borgartúni þar sem er ágætt pláss kl. 14:00? Ef við viljum fá okkur bjór væri fínt að fá tillögur um stað?
Einar Páll
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Kannski ekki meiri vonbrigði
Kannski ekki meiri vonbrigði en það - að maður reyndi að taka að sér of stórt verkefni og var ekki nógu duglegur að skipuleggja sig með þeim fáu sem voru virkir í Drupal á þeim tíma.
Ég er því miður að fara út á land um páskahelgina, en annars laus flest kvöld og helgar.
Drupal er frábært kerfi og ég held að það sé klárlega málið að reyna að klára Drupal 7 þýðinguna sem fyrst. Væri líka áhugavert að sjá hvað fólk hefur verið að gera með Drupal á Íslandi, hvort einhverjar aukaeiningar hafa verið þróaðar og hvernig staðan er á þeim.
Annað sem ég hef verið að spá í síðan ég kom til landsins í mars er hýsingar fyrir Drupal. Ég hef verið að reka multi-site installations fyrir sjálfan mig og vini en ég hef ekki tíma til að fara í hýsingarbransan eins og er fyrir fyrirtæki sem vantar Drupal hýsingu. Þ.a.s. ég er að leita að "cloud hýsingu" sem væri multi-site installation (sami codebase) og hýsingaraðillinn myndi sjá um að uppfæra.
Ég skal smella réttindum á Einar um leið og ég fæ þá til að laga aðganginn minn (sem heitir nú andrioid.net - hét áður imerlin).
Edit: Ástæðan f. því að það hefur ekki verið hægt að hafa samband við mig gegnum groups.drupal.org er að þeir týndu email addressunni minni. Contact formið á Drupal.org ætti að virka samt.
Ég held að ég mundi seint
Ég held að ég mundi seint vilja að hýsingaraðilinn minn sæi um að uppfæra Drupal. Hinsvegar var ég byrjaður á að ræða við 1984 í desember síðasliðnum um að bjóða upp á Drupal multisite hýsingu fyrir mína kúnna á sama verði og venjulega shared hosting planið þeirra og þeir tóku mjög vel í það. Það yrði þá gert þannig að þeir mundu rukka þetta fólk fyrir hýsingu eins og aðra þeirra kúnna og ég væri ekki milligöngumaður í því eða endursöluaðili (ég hef ekki áhuga á að fara út í hýsingarbransann). Þeir vildu bara að ég tæki saman hvaða tæknilegar þarfir ég teldi mig hafa fyrir góða Drupal hýsingu og sendi þeim, þeir ætluðu svo að finna út hvernig best væri að framkvæma það.
Mjög líklega væri sniðugt fyrir okkur að sameinast um að gera slíka requirements lista fyrir 1984 þannig að við gætum allir nýtt okkur þetta. Þeir hafa væntanlega ekkert á móti fleiri kúnnum. Ég er tilbúinn að taka að mér að leiða viðræður við þá fyrst ég var byrjaður á því, það er samt líklega efni í annan þráð.
Undri venjulegum
Undri venjulegum kringumstæðum myndi ég ekki vilja láta hýsingaraðillan setja skítuga puttana í Drupal installið mitt.
En ef það væru Drupal sérfræðingar á ferðinni sem væru líka með allan sinn stack í Drupal á sömu vélum myndi ég stóla á það. Hef sjálfur ekki lent í stórum vandræðum við öryggisuppfærslur, það er bara leiðinlegt að fara inn, sækja og afpakka þessu dóti alltaf manually.
Fyrir sjálfan mig get ég séð um þetta sjálfur. Er aðalega að spá ef maður fer að selja fyrirtækjum Drupal vefi - að þeir séu ekki að kaupa sér óuppfærðar hýsingar eða þurfi að ráða einhvern til að uppfæra fyrir sig einusinni í mánuði.
Hýsingar og uppfærslur
Persónulega nota ég aldrei "multi-site installations". Þetta hefur auðvitað þá annmarka að það þarf að uppfæra hverja og eina vefsíðu fyrir sig. Reynslan er hins vegar sú að allar vefsíður eru að virka þrátt fyrir að fram komi nýjar uppfærslur. Jafnvel mánuðum saman. Það bráðliggur ekki á að uppfæra módúla um leið og þeir eru lagfærðir af einhverjum orsökum. Ég hef það lag á vinnuferlinu að ég geymi alltaf nýjustu uppfærslu af módúlum á tölvunni hjá mér þegar ég hef einusinni sótt hana. Undir Drupal módúlar er ég með nýjustu útgáfuna af þeim módúlum sem ég er að nota. Ef hraðinn er 1.0 Gbps tekur um 20 - 30 mínútur að uppfæra Alla módúla og gagnagrunninn. Bæði 1984.is og Netsamskipti hafa staðið sig mjög vel í að setja vefina upp, sjá um afritun og fylgjast með að allt sé að virka. Þetta er aðferð sem ég nota og virkar ágætlega. Hef ekki lent í neinum teljandi vandræðum. Það hentar mér mjög vel að hýsingarfyrirtækið sjái um sem mest af sérþekkingunni sem snýr að hýsingu og uppsetningu.
En auðvitað sýnir þessi umræða hversu gagnlegt það getur verið fyrir okkur að hittast og skiptast á skoðunum.
Einar
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Þegar ég talaði við 1984 um
Þegar ég talaði við 1984 um þetta á sínum tíma töluðum við um ssh aðgang (ekki rótaraðgang samt, eðlilega) þannig að hægt væri að nota Drush. Þannig væri muuun, jafnvel muuuuuun fljótlegra og einfaldara að gera öryggisafrit af gagnagrunni og uppfæra módúlur og þemu.
Mér finnst ólíklegt að 1984 tækju að sér að sjá um Drupal uppfærslur hinsvegar, en ég veit það náttúrulega ekki. Hinsvegar er eflaust hægt að finna þannig þjónust erlendis ef menn hafa áhuga á því.
SSH aðgangur nauðsynlegur
Auðvitað átti ég að láta fylgja að ssh aðgangur er nauðsynlegur. Bæði Netsamskipti (Emil) og 1984 (Mörður og Sigurður) hafa útvegað slíkan aðgang. Eðlilega ekki rótaraðgang heldur eingöngu aðgang að svæðinu sjálfu. Síðan er fínt að nota hið frábæra tæki ExpanDrive til að mappa skráasafnið. En ExpanDrive er magnað lítið forrit. Gerir nákvæmlega það sem það á að gera. Ekki meira og ekki minna. Kostar um 35 dollara minnir mig.
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Hittingur
Sælir
Klaufalegt hjá mér að blanda páskunum í þetta.
Hvað með föstudaginn 6. maí?
Varðandi hýsinguna þá hafa 1984.is og Netsamskipti verið að hýsa Drupal síður.
Spurning að hafa samband við þessi fyrirtæki varðandi hýsingu.
Einar
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Hittingur
Ég er klár 6. maí í hitting
Ég er til í að reyna að
Ég er til í að reyna að komast suður 6. maí í hitting. Það væri mikil synd að missa af því.
Reyndar var ég að komast að
Reyndar var ég að komast að því að það væri muuun æskilegra fyrir mig að hafa þetta 29. apríl eða 13. maí. Er það óhentugt fyrir ykkur?
Hittingur
Allar þrjár dagsetningar (f. utan páskana) henta mér. En þetta þarf ekkert endilega að vera föstudagur, mín vegna.
Föstudagurinn 29. apríl?
Núna þegar þetta hefur mallað í nokkra tíma þá held ég að við ættum að setja þetta niður á föstudaginn 29. apríl kl. 14:00 í Kaffitár í Borgartúni. Þar er fínt pláss á efri hæðinni og auðvelt að komast inn á þráðlaust net ef þörf er á slíku.
Einar
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Ég mæti
Tuttugastaogníunda apríl kl. 14:00. Skráð í dagatalið :-)
Veðurstofan
Sælir allir,
Veðurstofan er að koma í Drupal 6 í gagnið. Værum til í það að koma að þessu verkefni og ég sjálfur er til að hittast og plana framhaldið. Væri ágætt ef einhver gæti tekið það að sér að koma með drög að dagskrá.
Kv,
Erlendur Arnar Gunnarsson
Góðar fréttir
Sæll Erlendur
Þetta eru góðar fréttir fyrir aðdáendur Drupal, að ekki sé talað um þá sem eru líka aðdáendur Veðurstofunnar.
Það er góð viðbót að fá Veðurstofuna í hóp þeirra sem þurfa að láta þýða Drupal.
Líklega er þeim að fjölga ört sem starfa við innsetningu efnis í Drupal. Ein ástæða fyrir því að þýðingar eru nauðsynlegar er að geta búið til námsefni sem hefur sömu "terminalogiuna" á öllum stöðum.
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Drög að dagskrá
Til að hafa stjórn á hlutunum og til að dreifa kröftunum legg ég til að Kristleifur Sk. Brandsson (bippi) sjái um að setja saman dagskrá og stýri umræðunni. Safni saman atriðum sem þarf að ræða. Sjálfur er ég eins og þið sjáið í mjög tímafrekri baráttu við að freista þess að ná stjórn á þessari Iceland síðu.
Einar Páll Svavarsson
Hit Iceland - A website about Iceland.
Hljómar vel
Þetta hljómar vel, ég mæti í kaffið.
Frábært
Sæl öll
frábært framtak
við hjá HÍ erum meira en lítið til í að vera með í þessari vinnu :O)
Sjáumst 29. apríl kl 14:00
kveðja
Díana Dögg og Doppa
Markaðs- og samskiptasvið HÍ